11 Íslandsmet á vormóti Aspar og Elliða

Nú um helgina fór fram Vormót Íþróttafélagsins Aspar í sundi.
Mótið sem nú var haldið í 30. sinn hefur í gegnum tíðina verið haldið með dyggum stuðningi Kiwanisklúbbsins Elliða sem kostað hefur öll verðlaun mótsins.
Að þessu sinni voru 11 Íslandsmet sett á mótinu sem sýnir að sundfólkið okkar er í stöðugri framför og bætingarnar í sumum tilfellum umtalsverðar.

Þeir sem settu metin um helgina voru:

50.metra skriðsund Karla
Marinó Ingi Adolfsson S8 ÍFR 00:35,14
Jón Margeir Sverrisson S14 Fjölnir 00:24,65

50.metra Skriðsund Kvenna
Íva Marín Adrichem S11 ÍFR 00:50,01
Thelma Björg Björnsdóttir S6 ÍFR 00:41,14

50.metra Baksund Karla
Hjörtur Már Ingvarsson S5 Fjörður 00:53,43

100.metra Skriðsund Karla
Jón Margeir Sverrisson S14 Fjölnir 00:54,19

100 metra Skriðsund Kvenna.
Karen Axelsdóttir S2 Ösp 3:41,37

100 metra bringusund Karla
Hjörtur Már Ingvarsson S5 Fjörður 2:21,72

100 metra Fjórsund karla
Ingólfur M Bjarnarsson S10 Nes 2:09,13
Jón Margeir Sverrisson S14 Fjölnir 1:03,77
Marinó Ingi Adolfsson S8 ÍFR 1:37,29

Í lok mótsins var stigahæsti sundmaðurinn heiðraður og var það Ólympíumótsmeistarinn Jón Margeir Sverrisson sem náði 1046 stigum í 100 metra skriðsundi en þetta er í fjórða sinn í röð sem Jón er stigahæstur á mótinu.

Íþróttafélagið Ösp óskar Íslandsmethöfunum sem og öðrum verðlaunahöfum helgarinnar innilega til hamingju með árangurinn.