Frjálsar íþróttir er fjölbreytt einstaklingsíþrótt sem er tilvalin fyrir iðkendur með þroska og hreyfihamlanir á öllum aldri. Megin markmið námskeiðs er að efla styrk, jafnvægi og samhæfingu iðkenda. Æft er bæði hlaup, kúluvarp, spjótkast og langstökk.
Æfingar eru í samstarfi við ÍFR.
Staðsetning
Æfingasvæði Laugardalshöll F-inngangur.
Búnaður
Hefðbundinn íþróttafatnaður og góðir íþróttaskór.
Æfingatímar
- Mánudaga kl.17:00 – 18:00
- Fimmtudaga kl.17:00 – 18:00
- Laugardaga kl.10:00 – 12:00