Upplýsingar um forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum og unglingum í íþróttum

Bæklingurinn fjallar um forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum og unglingum í íþróttum.

Markmið með útgáfu bæklingsins er að:

  • Auka meðvitund íþróttafélaga um að kynferðislegt ofbeldi getur átt sér stað á þeim vettvangi eins og öðrum.
  • Hvetja íþróttafélög til umræðna um hvernig hægt sé að fyrirbyggja kynferðisofbeldi.
  • Fræða þjálfara, stjórnendur og sjálfboðaliða um hvað átt sé við þegar talað er um kynferðislega misnotkun.
  • Fræða þjálfara, stjórnendur og sjálfboðaliða um þau lagaskilyrði sem gilda um kynferðisleg samskipti við börn.
  Það skal tekið fram að ef einhver grunur er á að kynferðislegt ofbeldi hafi átt sér stað ber að tilkynna það annað hvort til barnaverndaryfirvalda eða með símtali í 112 og tilkynna í nafni félags.

 

Smelltu hér til að sækja og skoða bæklinginn