Keila er bæði liðs- og einstaklingsíþrótt sem er tilvalinn fyrir iðkendur á öllum aldri óháð fötlun. Keila eflir jafnvægi og samhæfingu en hefur einnig félagslegt gildi og stuðlar að samvinnu einstaklinga. Keila er góð hreyfing og frábær skemmtun. Öspin með nokkur keppnislið sem keppa í deild ófatlaðra og þar eru aðeins þeir sem eru lengrakomnir.
Æfingar eru í Keiluhöllinni í Egilshöll
- Þriðjudaga kl.17:00 – 18:00 (fyrri hópur, mæta 16:45)
- Þriðjudaga kl.18:0-19:00 (seinni hópur, mæta 17:45)
- Fimmtudaga kl. 17:00-18:00 (Keppnishópur, mæta 16:45)
- Fimmtudaga kl. 17:00-18:00 (börn 8-15 ára, mæta 16:45)
Ath! Mæting er alltaf 15 mínútur fyrir uppgefinn tíma
Búnaður: Iðkendur fá lánaða skó og keilukúlur á staðnum.
Vinsamlegast hafið samband við þjálfara keiludeildar áður en nýr iðkandi skráir sig til æfinga.
