Um félagið

Íþróttafélagið Ösp var stofnað 18. Maí, 1980 af foreldra- og kennarafélagi Öskjuhlíðarskóla, með stuðningi frá Íþróttasambandi Fatlaðra. Stofnfundurinn fór fram á Þingvöllum, þar sem mættu foreldrar og nemendur til veislu í Valhöll.

Markmið Íþróttafélagsins Aspar er að standa fyrir íþróttaæfingum hjá félögunum, með sem fjölbreyttustum hætti, þeim til heilsubótar og ánægju og þátttöku í íþróttamótum, þar sem hæfni hvers og eins nýtur sín sem best.

Fjöldi iðkenda er um 250 manns og æfðar eru níu íþróttagreinar, þannig að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Íþróttafélagið Ösp er opið öllum, sem hafa áhuga á íþróttum, sem æfðar eru hjá félaginu: sund,  keila, frjálsar íþróttir, boccia, fótbolti,  nútíma fimleikar, styrktarþjálfun, borðhokkí og skautar.

Allir eru velkomnir á æfingar, til að kynnast því, sem þar fer fram og hvetjum við alla til að mæta og sjá hvort ekki sé eitthvað við þeirra hæfi eða þeirra skjólstæðinga sem þeir gætu haft gaman af.

 

Helga Hákonardóttir.
Formaður Aspar

 

Stjórn Aspar 2019 – 2020

Lög Aspar samþykkt á aðalfundi 2019
Ofbeldisvarnaráætlun 2019
Siðareglur Aspar gefin út 2019