Þjálfarar Skautar

Helga Kristín Olsen

Yfirþjálfari

Helga hefur starfað við skautaþjálfun síðan 1997 og hjá Skautadeild Aspar frá stofnun hennar árið 2011. Helga er með skautaþjálfaramenntun að 3.stigi og lærði skautaþjálfun hjá Skautasambandi Ísland, NISA og í gegnum samstarfsverkefni ÍSS og ISU.

Helga er íþróttagreinastjóri Special Olympics fyrir skautaíþróttir og hefur þjálfað alla keppendur Special Olympics á skautum síðan 2004.

 

Netfang: skautar@ospin.is
Sími: 698-0899

Hanna Rún Ragnarsdóttir

Þjálfari

Hanna Rún er með þjálfaramenntun að 1.stigi bæði frá Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands og Skautasambandi Íslands. Hanna Rún hefur viðamikla reynslu af skautaíþróttinni og þá sérstaklega í einstaklingsskautun og í samhæfðum skautadansi (syncro).

Hanna Rún hefur starfað hjá Skautadeild Aspar síðan 2022 og sinnir þjálfun í skautaskóla og í framhaldshópi deildarinnar.

Andri Freyr Magnússon

Þjálfari

Andri er með þjálfaramenntun að 1.stigi bæði frá Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands og Skautasambandi Íslands. Auk þess er hann með “Learn to Play” vottun sem leiðbeinandi frá Alþjóða íshokkísambandinu. Andri hefur mjög víðtæka reynslu af skautaíþróttum og hefur þjálfað íshokkí um árabil og er með alþjóðleg dómararéttindi IIHF sem aðaldómari.

Andri hefur starfað hjá Skautadeild Aspar síðan 2022 og sinnir þjálfun í skautaskóla, í framhaldshópi deildarinnar ásamt því að stýra þjálfun í skautahlaupi. Andri er íþróttagreinastjóri Special Olympics fyrir skautahlaup.

Ísold Marín Haraldsdóttir

Þjálfari

Ísold er með þjálfaramenntun að 1.stigi bæði frá Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands og Skautasambandi Íslands.

Ísold hefur starfað hjá Skautadeild Aspar síðan 2018 og sinnir þjálfun í skautaskóla.

Halldór Hrafn Reynisson

Þjálfari

Halldór er með þjálfaramenntun að 1.stigi frá Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands og hefur hafið þjálfaranám hjá Skautasambandi Íslands.

Halldór hefur starfað hjá Skautadeild Aspar síðan 2024 og sinnir þjálfun í skautaskóla og í framhaldshópi deildarinnar undir handleiðslu þjálfara.

Sóldís Sara Haraldsdóttir

Aðstoð við þjálfun

Sóldís er iðkandi og keppandi Skautadeildar Aspar og hefur aðstoðað við þjálfun hjá deildinni síðan 2024. Sóldís aðstoðar iðkendur í skautaskóla við æfingar, undir handleiðslu þjálfara.

Jóhanna Sigurðardóttir Teuffer

Aðstoð við þjálfun

Jóhanna er iðkandi og keppandi Skautadeildar Aspar og hefur aðstoðað við þjálfun hjá deildinni síðan 2024. Jóhanna aðstoðar iðkendur í skautaskóla við æfingar, undir handleiðslu þjálfara.

Þórunn Emilía Baldursdóttir

Aðstoð við þjálfun

Þórunn er iðkandi og keppandi Skautadeildar Aspar og hefur aðstoðað við þjálfun hjá deildinni síðan 2023. Þórunn aðstoðar iðkendur í skautaskóla við æfingar, undir handleiðslu þjálfara.