Handbolti

HSÍ og Íþróttafélagið Ösp kynna með stolti nýtt samstarfsverkefni – handboltaæfingar fyrir börn og ungmenni með fatlanir. Verkefnið felur í sér skipulagðar æfingar einu sinni í viku undir stjórn reynslumikilla þjálfara. Æfingarnar eru ókeypis á þessu kynningarári.

 

Yfirþjálfari æfinganna verður Sunna Jónsdóttir, þroskaþjálfi og fyrrverandi landsliðskona í handbolta, sem hefur spilað 99 landsleiki fyrir Ísland og gegnt hlutverki fyrirliða á tveimur stórmótum. Með henni starfa Björn Eiríksson, íþróttakennari í Klettaskóla, og Halldóra Ingvarsdóttir, þroskaþjálfi.

 

Æfingarnar fara fram í Klettaskóla á miðvikudögum kl. 17:00–18:00, og hefjast 10. september.

 

Íþróttafélagið Ösp stendur fyrir fjölbreyttum íþróttaæfingum fyrir félagsmenn sína þar sem áhersla er lögð á heilsubót, ánægju og þátttöku í íþróttamótum. Nú bætist handbolti í þann hóp, sem gerir félaginu kleift að bjóða upp á alls ellefu mismunandi íþróttagreinar.

 

HSÍ er stolt af samstarfinu og hvetur alla áhugasama til að mæta og prófa handbolta á skemmtilegan og uppbyggilegan hátt.

 

Nánari upplýsingar: ospin@hsi.is

 

Lykilupplýsingar

  • Staðsetning: Klettaskóli
  • Tími: Miðvikudagar kl. 17:00–18:00
  • Upphaf: 10. september
  • Yfirþjálfari: Sunna Jónsdóttir
  • Aðrir þjálfarar: Björn Eiríksson og Halldóra Ingvarsdóttir
  • Æfingargjöld: Ókeypis á kynningarárinu
  • Hafið samband: ospin@hsi.is