Keila er bæði liðs- og einstaklingsíþrótt sem er tilvalinn fyrir iðkendur á öllum aldri óháð fötlun. Keila eflir jafnvægi og samhæfingu en hefur einnig félagslegt gildi og stuðlar að samvinnu einstaklinga. Keila er góð hreyfing og frábær skemmtun. Einnig er Öspin með keppnislið sem það sendir til leiks í utandeildinni að keppa einu sinni í mánuði og er það fyrir iðkendur sem eru lengra komnir.
Staðsetning
Keiluhöllin í Egilshöll og í Klettaskóla
Búnaður
Iðkendur leigja skó á staðnum.
Æfingatímar
- Þriðjudaga í Egilshöll kl.17:00 – 18:00 (fyrri hópur)
- Þriðjudaga í Egilshöll kl.18:00-19:00 (seinni hópur)
Ath! Mæting er alltaf 15 mínútur fyrir uppgefinn tíma
Yfirþjálfari
Laufey Sigurðardóttir
Netfang: keila@ospin.is
Sími: 892-2888