- Söluveð: Seljandi heldur söluveði, samkvæmt III. kafla, undirkafla G, laga nr. 75/1997 um samningsveð, í seldri vöru eins og hún er skilgreind í reikningi þar til kaupverð vörunnar samkvæmt sölureikningi hefur verið að fullu greitt.
- Greiðsluskilmálar: Gjalddagi reiknings er útgáfudagur. Viðskiptamenn eru beðnir um að greiða reikninga í samræmi við þá skilmála sem á hann eru tilgreindir. Hæstu lögleyfðu dráttarvextir reiknast frá gjalddaga, séu reikningar ógreiddir á eindaga. Íþróttafélagið Ösp áskilur sér rétt til að fella niður reikningsafslátt, dragist greiðsla umfram tilskilinn greiðslufrest. Þegar samið hefur verið um að vara skuli afhent í áföngum og greiðsla hefur ekki borist vegna fyrri afhendinga stöðvast frekari afhendingar af hálfu seljanda þar til trygging fyrir greiðslu hefur verið innt af hendi. Sama gildir ef samið hefur verið um innborganir vegna vörukaupa og kaupandi stendur ekki við samkomulag þar að lútandi. Seljandi tekur ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem kaupandi kann að verða fyrir vegna tafa á afhendingu sbr. ofangr.
- Sendingar: Vara er ætíð send á ábyrgð kaupanda. Sé pöntuð vara ekki sótt – áskilur seljandi sér rétt til að senda vöruna til kaupanda á hans kostnað – eða að varan er geymd á kostnað og ábyrgð kaupanda og seljandi áskilur sér þá rétt til að krefjast geymslu- og umsýslugjalds.
- Tafir á afhendingu: Seljandi ber ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem verða kann vegna seinkunar á afhendingu eða rangrar afhendingar og/eða ef vara kemur gölluð frá erlendum birgjum. Seljandi ber enn fremur ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem má rekja til aðstæðna (force majeure) sem seljandi getur ekki ráðið við þ.á.m. verkföll, verkbönn, eldsvoða, stríðsástand, skipsskaða eða aðrar sambærilegar aðstæður.
- Skil á vöru(m): Seljandi tekur ekki við vöru sem kaupandi vill skila nema um lagervöru sé að ræða og að skilin fari fram innan 15 daga frá afhendingu vörunnar. Ekki er um endurgreiðslu að ræða í slíkum tilvikum heldur fær kaupandi inneignarnótu fyrir andvirði vörunnar. Skilyrði fyrir því að seljandi taki á móti vörunni er að hún sé í sama ásigkomulagi og við afhendingu. Kvartanir um galla á vöru skulu berast seljanda sem fyrst, helst skriflega og innan 8 daga frá afhendingu. Ef ástæður þess að vöru er skilað verða ekki raktar til mistaka seljanda og/eða galla á vörunni áskilur fyrirtækið sér rétt til að draga allan kostnað sem af þessu hlýst frá inneign kaupanda.
- Ábyrgð: Gildistími ábyrgðar samkvæmt reikningi þessum er í eitt ár frá dagsetningu hans. Undantekning frá því er sú að á vörum sérstaklega tilgreindur lengri ábyrðartími, gildir ábyrgðin frá dagsetningu reiknings. Komi í ljós framleiðslu- og/eða efnisgalli á ábyrgðartímabilinu takmarkast ábyrgð seljanda við kostnað við varahluti og viðgerð á hinni gölluðu vöru. Kaupandi skal kosta og sjá um að koma vöru á verkstæði seljanda til viðgerðar. Seljandi ber aldrei ábyrgð á afleiddu tjóni vegna galla eða bilunar á seldri vöru. Bótafjárhæð takmarkast ætíð við söluverð viðkomandi vöru án vsk. Ef seld eru notuð tæki fylgir þeim ekki ábyrgð nema um slíkt sé sérstaklega samið skriflega. Seljandi undan þiggur sig að öðru leyti ábyrgð á seldum vörum að því marki sem lög heimila.
- Brottfall ábyrgðar: Seljandi ber enga ábyrgð á óbeinu tjóni sem kann að hljótast af notkun á vörunni. Eigi bilun, skemmdir eða eftir atvikum eyðilegging á vöru rætur að rekja til rangrar og/eða slæmrar meðferðar kaupanda (eða aðila sem hann ber ábyrgð á) ber kaupandi ábyrgð á greiðslu viðgerðarkostnaðar. Ábyrgð fellur niður ef verksmiðju- eða raðnúmer hefur verið fjarlægt af vörunni. Ábyrgðin fellur úr gildi ef ekki hefur verið farið að fyrirmælum framleiðandans varðandi öryggismál, uppsetningu og stýrt viðhald samanber leiðbeiningar í handbók. Ábyrgð gildir ekki vegna tæringar á búnaði, eðlilegs slits eða vegna skemmda af völdum veðurs.
- Skaðsemisábyrgð: Verði ágreiningur um það hvort varan hafi valdið tjóni fer um ábyrgð seljanda eftir lögum nr. 25/1991 um skaðsemisábyrgð. Seljandi undan þiggur sig ábyrgð af slíku tjóni að því marki sem þau lög heimila.
- Ábyrgðarskírteini: Reikningurinn gildir sem ábyrgðarskírteini.
- Sé um að ræða neytendakaup í skilningi laga nr. 48/2003 ganga ákvæði þeirra laga framar viðskiptaskilmálum þessum ef þau stangast á.
- Persónuvernd: Farið er með allar persónuupplýsingar sem seljandi móttekur sem algjört trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu. Kaupanda gefst hins vegar kostur á að fá send tilboð í tölvupósti og mun seljandi þá aðeins nota þær upplýsingar sem til þess þarf s.s. póstfang.
- Lög og varnarþing: Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur netverslun Íþróttafélagsins Aspar á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu einungis vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.
Skilmálar Íþróttafélagsins Aspar um notkun á vafrakökum má sjá hér
Öll verð og upplýsingar á heimasíðu eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilur Íþróttafélagið Ösp sér allan sér rétt til verðbreytinga án fyrirvara.