Skrifað þann 02 jan 15:21
í Fréttir
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands sæmdi í dag ellefu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.
Þau sem orðuna fengu í dag eru, í stafrófsröð:
- Björgólfur Jóhannsson forstjóri, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til þróunar íslensks atvinnulífs
- Elísabet Ronaldsdóttir kvikmyndagerðarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar kvikmyndagerðar
- Geirmundur Valtýsson tónlistarmaður, Sauðárkróki, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar og heimabyggðar
- Guðrún Ása Grímsdóttir rannsóknarprófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskra fræða og menningar
- Helga Guðrún Guðjónsdóttir fyrrverandi formaður UMFÍ, Kópavogi, riddarakross fyrir forystustörf á vettvangi íþrótta og æskulýðsstarfs
- Hjörleifur Guttormsson fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til umhverfisverndar og náttúrufræðslu og störf í opinbera þágu
- Hrafnhildur Schram listfræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu íslenskrar myndlistar
- Hörður Kristinsson grasafræðingur, Akureyri, riddarakross fyrir rannsóknir og kynningu á íslenskum gróðri
- Ólafur Ólafsson formaður Aspar, Reykjavík, riddarakross fyrir störf að íþróttamálum fatlaðra
- Steinunn Kristjánsdóttir prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir rannsóknir á sviði íslenskrar sögu og fornleifa
- Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til íslenskra bókmennta
Til hamingu Olli og Kittý