Bikarmót Asparinnar í kraftlyftingum

Öspin hélt bikarmót fatlaðra í Ármannssalnum laugardaginn 29. nóvember, og tókst mótið afar vel. Góð stemning var í salnum og fjölbreyttur hópur keppenda tók þátt.

Yngsti keppandinn á mótinu var aðeins 11 ára og stóð sig mjög vel. Þá setti Númi Íslandsmet í sínum flokki í bekkpressu með 122,5 kg, sem vakti mikla athygli.

Sjá myndir frá mótinu á Facebook:
Facebook: Bikarmót 2025