Skrifað þann 28 okt 11:41
í Fréttir
Laugardaginn 31. október 2026 verða Allir með leikarnir haldnir í Laugardalshöll kl. 10-14
Allir með leikarnir eru sannkölluð íþróttahátíð fyrir börn á grunnskólaaldri með fatlanir eða stuðningsþarfir, þar sem þátttakendur fá tækifæri til að prófa fjölbreyttar íþróttagreinar í skemmtilegu og hvetjandi umhverfi.
Markmið leikanna er að kynna fyrir börnum ólíkar íþróttir og gefa þeim tækifæri til að finna íþrótt sem vekur áhuga. Áhersla er lögð á leik, gleði og þátttöku á eigin forsendum. Engin krafa er gerð um fyrri reynslu af íþróttum og eru allir velkomnir.
- Hrekkjavökuþema og öll hvött til að mæta í búning
- Lukkudýr Allir með Sóli og Sóla mæta á svæðið
- Landsliðsfólk mætir og heilsar upp á gesti
- Pizzaveisla í boði
- DJ heldur uppi stuðinu og skemmtilegri stemningu
Þátttökugjald: 1.500kr
Skráning fer fram á Abler