Í byrjun júní fékk sameiginlegt lið Stjörnunnar og Asparinnar óvænt boð um þátttöku í Genuine Cup, alþjóðlegu knattspyrnumóti fatlaðra íþróttamanna í Houston. Mótið var einkar veglegt í ár vegna Heimsmeistaramótsins en markmið mótshaldara var að ná inn þátttökuliðum frá 50 þjóðum. Eftir stuttan umhugsunarfrest var ákveðið að kýla á þetta – enda er það ekki á hverjum degi sem maður fær tækifæri til að vera fulltrúi þjóðar sinnar á svona flottu og stóru móti.
Alls kepptu 14 leikmenn úr Stjörnunni/Ösp og Suðra fyrir Íslands hönd dagana 27. júlí til 2. ágúst, með stuðningi KSÍ. Mótið fór fram við glæsilegar aðstæður hjá Rice University, þar sem íslenska liðið stóð sig feikna vel og var landi og þjóð til mikils sóma. Liðið keppti samtals 9 leiki á mótinu og spilaði m.a. við lið frá Mexikó, Bandaríkjunum, Englandi.
Á mótinu komu saman rúmlega 1.000 íþróttaiðkendur frá um 50 löndum. Genuine Cup er þó meira en knattspyrnumót þar sem markmið þess er að auka sýnileika, þátttöku og tækifæri fatlaðs fólks í íþróttum og samfélaginu.
Ásamt því að spila fullt af fótbolta þá fékk hópurinn tækifæri til þess að heimsækja NASA, dýragarð og ýmis söfn á svæðinu. Harlem Globetrotters mættu líka til leiks og sýndu listir sínar. Aðstæður á háskólasvæði Rice University voru til fyrirmyndar og þótti maturinn einstaklega góður.
Við sendum liðsmönnum og þjálfurum okkar hjartans þakkir fyrir frábæra frammistöðu, gleði og einstakan liðsanda. Stór hópur foreldra fylgdi hópnum og fá þau einnig þakkir fyrir sitt framlag.



