Author: Skrifstofa Aspar

Í lok október hélt Suðri Selfoss glæsilegt Íslandsmót í einstaklingskeppni boccia og fagnaði um leið 40 ára afmæli félagsins. Ösp átti í kringum 20 keppendur á mótinu að þessu sinni og stóðu þau sig öll vel. Í rennuflokki vann Kristján Vignir til gullverðlauna og Þórey Rut...

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. - 30. nóvember 2026.  Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi. Sund er alhliða líkamsrækt og góð leið til heilsubótar...

Laugardaginn 31. október 2026 verða Allir með leikarnir haldnir í Laugardalshöll kl. 10-14 Allir með leikarnir eru sannkölluð íþróttahátíð fyrir börn á grunnskólaaldri með fatlanir eða stuðningsþarfir, þar sem þátttakendur fá tækifæri til að prófa fjölbreyttar íþróttagreinar í skemmtilegu og hvetjandi umhverfi. Markmið leikanna er að kynna...

Ösp býður upp á boccia æfingar fyrir ungmenni á aldrinum 14-22 ára. Æfingar fara fram í íþróttahúsi Klettaskóla á miðvikudögum kl. 17-18. Þjálfari er Súsanna og veitir hún nánari upplýsingar á susanna@ospin.is  ...

Í byrjun júní fékk sameiginlegt lið Stjörnunnar og Asparinnar óvænt boð um þátttöku í Genuine Cup, alþjóðlegu knattspyrnumóti fatlaðra íþróttamanna í Houston. Mótið var einkar veglegt í ár vegna Heimsmeistaramótsins en markmið mótshaldara var að ná inn þátttökuliðum frá 50 þjóðum. Eftir stuttan umhugsunarfrest var...

Í vetur verður skrifstofan opin á mánudögum klukkan 10 til 13. Símanúmer skrifstofu er 555 0066 og alltaf er hægt að senda tölvupóst á ospin@ospin.is....

Skrifstofa Aspar verður lokuð frá og með 13. júlí 2026 til og með 3. ágúst 2026 vegna sumarleyfa. Athugið að alltaf er hægt að senda tölvupóst á ospin@ospin.is og verður tölvupósti svarað eins fljótt og hægt er. Njótið sumarsins :) ...