Skrifað þann 04 mar 20:03
í Fréttir
Nú á dögunum fékk Skautadeild Aspar myndarlegan styrk frá Íþróttasambandi fatlaðra og Velferðarráðuneyti fyrir þróun og hönnun á sjónrænu þjálfunarkerfi í listhlaupi. Helga Kristín Olsen, yfirþjálfari skautadeildarinnar, hefur haft veg og vanda af þessu verkefni. Það verður afar skemmtilegt að fylgjast með þróun á þessu verkefni á næstu misserum.