Skrifað þann 05 apr 13:35
í Fréttir
Íþróttafélagið Ösp fékk á dögunum tilnefningu til Íslensku Lýðheilsuverðlaunanna. Íslensku lýðheilsuverðlaunin eru verðlaun sem unnin eru í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið, embætti landlæknis, Geðhjálp og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands. Verða þessi verðlaun veitt í fyrsta sinn núna í vor. Óskað var eftir tillögum frá almenningi um hver ætti að hljóta þessa viðurkenningu fyrir framlag til eflingar lýðheilsu á Íslandi. Ánægjulegt var að heyra að Öspin fékk fjölda tilnefninga frá almenningi til þessar verðlauna.
Einsog segir á vef Forseta Íslands : „Íslensku lýðheilsuverðlaununum er ætlað að vekja athygli á mikilsverðu framlagi á sviði lýðheilsu og auka með þeim hætti áhuga á bættri heilsu og líðan almennings. Veitt verða verðlaun í tveimur flokkum, annars vegar til einstaklings og hins vegar til samtaka, stofnunar eða fyrirtækis sem hefur látið gott af sér leiða á þessu sviði.“
Tilkynnt verður hver hlýtur verðlaunin í hátíðlegri athöfn á Bessastöðum sem sjónvarpað verður á RÚV þann 19. apríl. Hægt er að lesa nánar um hverjir aðrir hafa verið tilnefndir á vef Forseta Íslands.
Við hjá íþróttafélaginu Ösp erum ólýsanlega þakklát og uppi með okkur með þessa tilnefningu og það verður spennandi að sjá þann 19.apríl hver hlýtur þessi Lýðheilsuverðlaun í ár.