Skrifað þann 24 feb 11:00
í Fréttir
Í dag hefst barnastarf í nútímafimleikum fyrir krakka á aldrinum 5 til 15 ára. Æfingarnar verða á miðvikudögum frá kl.16:30 til 17:30 í Klettaskóla. Fyrst um sinn er hægt að koma og prófa í 2 skipti án skuldbindinga.
Nánari upplýsingar er hægt að sjá á síðu nútímafimleikanna hér á vefnum eða með því að hafa samband við yfrþjálfara deildarinnar, Ragnhildi Sigríði Marteinsdóttur í síma 844 0644. Einnig er hægt að fá upplýsingar á skrifstofu Íþróttafélagsins Aspar í netfangið ospin@ospin.is