Okkur vantar sundþjálfara

Íþróttafélagið Ösp leitar að yfirþjálfara til að þjálfa framhaldshóp í sundi. Um er að ræða fatlaða einstaklinga á öllum aldri.

Starfið er krefjandi en skemmtilegt enda um frábæran hóp iðkenda að ræða.  Æfingarnar eru í Laugardalslaug 6 sinnum í viku. Á mánudögum og þriðjudögum kl 18:30, miðvikudögum og fimmtudögum 16:30, föstudögum 18:00 og laugardögum 10:15. Yfirþjálfari heldur utan um skráningar á iðkendum, skipulag og rekstur deildarinnar.  Farið er í keppnis- eða æfingaferðir bæði innan og utanlands a.m.k tvisvar sinnum á ári.

Áhugasamir hafi samband við Helgu Hákonardóttur, formann Asparinnar, í netfangið formadur@ospin.is eða í síma 6635477.