Skautadeild Aspar leitar að skautaþjálfara

Við í Skautadeild Aspar óskum eftir öflugum einstakling til þess að ganga til liðs við þjálfarateymi deildarinnar.

Skautadeild Aspar sérhæfir sig í þjálfun einstaklinga með  fötlun/sérþarfir þar sem lögð er áhersla á að allir fái notið sín í hvetjandi  námsumhverfi. Unnið er eftir alþjóðlegu áfangakerfi Special Olympics þar sem iðkendur eru virkir í eigin námsferli og þjálfunaraðferðir eru aðlagaðar þörfum iðkenda.

Skautaþjálfari – hæfnikröfur:

  • Hefur lokið að lágmarki þjálfarastig 1 (ÍSÍ og ÍSS)
  • Góð samskiptahæfni
  • Stundvísi
  • Á auðvelt með að vinna með öðrum í teymisvinnu
  • Lágmarksaldur 18 ára
  • Hreint sakarvottorð

Aðstoð við þjálfun – hæfnikröfur:

  • Býr að góðri skautafærni
  • Góð samskiptahæfni
  • Stundvísi
  • Á auðvelt með að vinna með öðrum í teymisvinnu
  • Lágmarksaldur 18 ára
  • Hreint sakarvottorð

Frekari upplýsingar veitir Helga Olsen, yfirþjálfara Skautadeildar Aspar,

olsen.helga@gmail.com eða í síma 698 0899 (eftir kl.16).