Nú er loksins komið að því að halda uppá 40 ára afmæli Asparinnar en við ætlum að blása til stórveislu þann 17.september næstkomandi í Gullhömrum, Þjóðhildarstíg 2-5, 113 Reykjavík.
Afmælisdagskráin er svohljóðandi
kl 18:00 – Húsið opnar
kl 18:45 – Borin verður fram glæsilegur þriggja rétta kvöldverður. Rjómalöguð sælkera grænmetissúpa með nýbökuðu brauði í forrétt. Lambafillet með gratínkartöflum, steinseljurót og villisveppasósu í aðalrétt og svo endum við kvöldverðinn með guðdómlegum gelató vanilluís með súkkulaðibitum.
kl.20:00 – Skemmtiatriði á heimsmælikvarða!
- Eyþór Ingi Gunnlaugsson – Stórsöngvari og skemmtikraftur
- Ingvar Valgeirsson trúbador – Er okkur öllum vel kunnugur og mun hann halda uppi fjörinu á dansgólfinu fram eftir kvöldi.
Veislustjóri kvöldsins er enginn annar en sjálfur Freyr Eyjólfsson.
Eftir hefðbundna dagskrá munu ljúfir tónar halda uppi fjörinu á dansgólfinu frameftir kvöldi
kl 23:45 – Dagskrárlok
Hægt er að kaupa miða á þessa frábæru afmælisveislu á mjög hagstæðu verði í gegnum Sportabler og hér á vefnum. Miðasala.
Stjórn Aspar