Skrifað þann 20 mar 21:30
í Fréttir
Íþróttafélagið Ösp leitar að þjálfara til að þjálfa sund. Um er að ræða fatlaða einstaklinga á öllum aldri.
Starfið er krefjandi en skemmtilegt enda um frábæran hóp iðkenda að ræða. Æfingarnar eru í Laugardalslaug 6 sinnum í viku. Á mánudögum og þriðjudögum kl 18:30, miðvikudögum og fimmtudögum 16:30, föstudögum 18:00 og laugardögum 10:15.
Farið er í keppnis- eða æfingaferðir bæði innan og utanlands a.m.k tvisvar sinnum á ári.
Áhugasamir hafi samband við Jens Kristjánsson, Yfirþjálfara, í netfangið asparsund@gmail.com eða í síma 8940991.