Franska sendiráðið á Íslandi hleypur fyirr Íþróttafélagið Ösp

Iðkendur úr Íþróttafélaginu Ösp, starfsfólk franska sendiráðsins og fleiri sendiráðum og annað velgjörðarfólk ætlar að taka þátt í skemmtiskokki Reykjavíkurmaraþonsins til að vekja athygli á starfi Asparinnar og á Paralympic Games 2024 í París, til styrktar Öspinni.

Íþróttafélagið Ösp er íþróttafélag án aðgreiningar en sérhæfir sig í þjónustu við einstaklinga með sérþarfir. Hjá okkur eru allir velkomnir. Allir geta tekið þátt í íþróttum á einhvern hátt. Enginn getur allt en allir geta eitthvað,

Vegna eðlis starfs Aspar þurfum við að vera með fleiri þjálfara en hefðbundin íþróttafélög sem gerir rekstur félagsins þyngri en hjá öðrum íþróttafélögum og félagið því háð velvilja og styrkjum frá öllum þeim sem hafa lagt okkur lið.

Þeir iðkendur sem vilja taka þátt geta skráð sig á vef Reykjavíkurmaraþons hér.

Hægt er að sjá áheitasíðu Franska Sendiráðsins og Íþróttafélagsins Aspar hér.