Skautadeild Aspar gerði góða ferð til Austurríkis

Helgina 12-15. desember fór fram, á vegum Austurríska skautasambandsins í samstarfi við Special Olympics Austria, Opna Austurríska Meistaramótið í listskautum. Íþróttafélagið Ösp átti 11 þátttakendur á mótinu sem var haldið í Ólympíuhöllinni í Innsbruck. Óhætt er að segja að keppendur hafi staðið sig með eindæmum vel og komu hlaðin verðlaunum heim og reynslunni ríkari. Hlutu þau verðlaun í öllum flokkum þar sem þau voru skráð til leiks. . Árangur hópsins sýnir hversu framarlega við Íslendingar stöndum í þjálfun fatlaðra einstaklinga í listskautum. Innilega til hamingju Skautadeild með frábæran árangur.