Laufey tekur við skrifstofu Aspar

Íþróttafélagið Ösp kynnir með ánægju að Laufey Sigurðardóttir hefur verið ráðin til að sjá um rekstur og daglega umsýslu skrifstofu Aspar. Laufey mun jafnframt áfram gegna stöðu yfirþjálfara keiludeildar Aspar.

Skrifstofan er í Sigtúni 42 og netfang hennar er ospin@ospin.is.