Skrifað þann 09 nóv 10:33
í Fréttir
Í lok október hélt Suðri Selfoss glæsilegt Íslandsmót í einstaklingskeppni boccia og fagnaði um leið 40 ára afmæli félagsins.
Ösp átti í kringum 20 keppendur á mótinu að þessu sinni og stóðu þau sig öll vel. Í rennuflokki vann Kristján Vignir til gullverðlauna og Þórey Rut brons. Við áttum að auki 6 keppendur sem komust í 16 liða úrslit og stóð Björney uppi sem sigurvegari í 5. deild og Óli yngri tók 4. sætið.
Öspin óskar Suðra til hamingju með afmælið og þakkar fyrir gott mót.
