Yfirþjálfari í framhaldshóp í sundi óskast til starfa

Íþróttafélagið Ösp leitar að yfirþjálfara til að þjálfa framhaldshóp í sundi. Um er að ræða fatlaða einstaklinga á öllum aldri.

Starfið er krefjandi en skemmtilegt enda um frábæran hóp iðkenda að ræða.  Æfingarnar eru í Laugardalslaug 6 sinnum í viku. Á mánudögum og þriðjudögum kl 16:30-18, miðvikudögum og fimmtudögum 18:30-20, föstudögum 16-17:30 og laugardögum 10:15-11:45. Yfirþjálfari heldur utan um skráningar á iðkendum, skipulag og rekstur deildarinnar.  Farið er í keppnis- eða æfingaferðir bæði innan og utanlands a.m.k tvisvar sinnum á ári.

Áhugasamir hafi samband við Helgu Hákonardóttur, formann Asparinnar, í netfangið formadur@ospin.is eða í síma 6635477.