Í dag voru veittir styrkir til Íþróttafélagsins Aspar við formlega afhendingu frá Lýðheilsusjóði. Helga Hákonardóttir, formaður Íþróttafélagsins Aspar, og Sigurður Jónas Eggertsson, stjórnarmaður Aspar, veittu styrkjunum viðtöku fyrir hönd félagsins.
Kristín Heimis, formaður Lýðheilsusjóðs, afhenti styrkina en félagið hefur um árabil notið stuðnings sjóðsins til fjölbreyttra verkefna.
Að þessu sinni hlýtur félagið:
700.000 krónur til keiluæfinga barna og ungmenna
700.000 krónur til kraftlyftinga
200.000 krónur til starfsdags og endurmenntunar þjálfara
Styrkirnir munu styðja áframhaldandi uppbyggingu og starfsemi félagsins, með áherslu á að efla íþróttastarf og þjálfun fyrir iðkendur á öllum aldri.

Kristín Heimis, formaður Lýðheilsusjóðs, við afhendingu í dag.