Aðalfundur Íþróttafélagsins Aspar – 17. maí

Aðalfundur Íþróttafélagsins Aspar verður haldinn í Sigtúni 42, 108 Reykjavík, sunnudaginn 17. maí kl.13:00.

Samkvæmt lögum félagsins skal dagskrá aðalfundar vera:

  1. Fundarsetning
  2. Kosning fundarstjóra, fundarritara og annarra starfsmanna fundarins
  3. Lögð fram ársskýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár og umræða um hana
  4. Lagðir fram skoðaðir ársreikningar, umræða og atkvæðagreiðsla
  5. Fjárhagsáætlun næsta starfsárs lögð fram
  6. Lagabreytingar (ef fyrir liggja) kynntar og um þær kosið
  7. Kosning stjórnar samkvæmt 5. gr. þessara laga
  8. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins varaskoðunarmanns
  9. Önnur mál
  10. Fundarslit

Framboð til stjórnar og lagabreytingartillögur skulu berast fyrir miðnætti 9. maí.  Tilkynna skal framboð til stjórnar í netfangið stjorn@ospin.is

Félagsmenn eru hvattir til að skoða lög félagsins hér