Skrifað þann 10 maí 13:20
í Fréttir
Á aðalfundi KLÍ sæmdi Keilusamband Íslands hjónin Laufeyju Sigurðardóttur og Bjarka Sigurðsson Silfurmerki KLÍ fyrir ómetanlegt framlag þeirra til málefna fatlaðra keilara. Hjónin hafa um árabil verið drifkraftar í starfi Asparinnar í keilu þar sem þau hafa lagt metnað sinn í að efla þátttöku, skapa jákvætt og uppbyggilegt umhverfi og stuðla að auknum tækifærum fyrir fatlaða iðkendur. Framlag þeirra hefur haft mikil áhrif á starfsemina og verið keilusportinu öllu til mikils sóma.
Mynd fengin af vef KLÍ