Sunnudaginn 17.maí kl.13:00 hófst aðalfundur Íþróttafélagsins Aspar í Sigtúni 42 í Reykjavík. Nokkuð fjölmennt var á fundinum en rétt um 60 manns mættu á fundinn. Af þeim voru 55 atkvæðabærir félagsmenn sem tóku þátt í aðalfundarstörfum.
Kl.13:20 setti formaður Aspar, Helga Hákonardóttir, fundinn og lagði til að Hafsteinn Pálsson yrði gerður að fundarstjóra – engar athugasemdir voru gerðar við þá tillögu og tók hann við fundarstjórn. Hafsteinn þakkaði traustið og bar upp þá tillögu að Helga Kristín Olsen yrði fundarritari og var það samþykkt af fundinum. Næst á dagskránni var skýrsla stjórnar sem bæði Helga Hákonardóttir og Eva Hrund Willatzen fóru með skýrslu stjórnar. Hægt er að lesa skýrslu stjórnar hér (PDF).
Eftir skýrslur stjórnar var farið í ársreikning félagsins og sköpuðust þó nokkrar umræður og spurningar úr sal, þá sér í lagi varðandi breytta bókhaldslykla þar sem Íþróttafélagið Ösp tók upp þá bókhaldslykla sem ÍSÍ mælir með að nota sem gerði það að verkum að ekki var hægt að bera saman árin 2024 og 2025. Ársreikningurinn var samþykktur með fyrirvara um að stjórn tileinki sér þau tilmæli frá skoðunarmönnum reikninga um að halda áfram á þessari vegferð. Stjórn fékk einnig það verkefni að kanna uppruna ákveðinnar reikningsskekkju sem hefur verið í bókhaldinu síðan að núverandi bókari tók til starfa.
Eftir að búið var að fara yfir helstu atriðin í ársreikningnum var gert stutt hlé þar sem tónlistarmaðurinn MC Gauti steig á stokk og tók þrjú af sínum vinsælustu lögum ásamt því að fara með lauflétt gaman mál í milli. Létti þetta töluvert á andrúmsloftinu á fundinum þar sem það á það til að þyngjast þegar farið er yfir fjármál.
Engar lagabreytingar lágu fyrir fundinn og var því farið beint í kosningar. Samkvæmt lögum félagsins átti að kjósa um formann, gjaldkera og tvo varamenn. Sett var færsla hér á vefinn með þeim einstaklingum sem buðu sig fram til formans og/eða varamanns. Engin framboð bárust á móti honum Júlíusi Helga Eyjólfssyni til gjaldkera og var hann því sjálfkjörinn. Til formanns voru þau Helga Hákonardóttir og Hörður Reynir Þórðarson í framboði og fóru atkvæði þannig að Helga fékk 31 atkvæði en Hörður fékk 24 atkvæði og var því Helga réttkjörinn formaður. Þegar þetta var niðurstaðan dróg Lilja Helgadóttir sitt framboð til varamanns til baka og þá sátu þeir tveir eftir, Hörður Sigurðsson og Hörður Reynir Þórðarson og urðu sjálfkjörnir sem varamenn.
Á meðan talningu atkvæða stóð veitti formaður Aspar, Helga Hákonardóttir, nokkrum iðkendum og félagsmönnum viðurkenningar.
Þeir einstaklingar sem fengu viðurkenningar voru:
Bronsmerki Aspar
Júlíus Helgi Eyjólfsson
Björney Sigurlaugsdóttir
Haukur Guðmundsson
Vilhelm Sigurjónsson
Luiza Katarzyna Kierzk
Sigurður Björn Bjarkason Kjerúlf