desember 2025

Íþróttafélagið Ösp kynnir með ánægju að Laufey Sigurðardóttir hefur verið ráðin til að sjá um rekstur og daglega umsýslu skrifstofu Aspar. Laufey mun jafnframt áfram gegna stöðu yfirþjálfara keiludeildar Aspar. Skrifstofan er í Sigtúni 42 og netfang hennar er ospin@ospin.is....

Helgina 12-15. desember fór fram, á vegum Austurríska skautasambandsins í samstarfi við Special Olympics Austria, Opna Austurríska Meistaramótið í listskautum. Íþróttafélagið Ösp átti 11 þátttakendur á mótinu sem var haldið í Ólympíuhöllinni í Innsbruck. Óhætt er að segja að keppendur hafi staðið sig með eindæmum...

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir hefur hlotið Kærleikskúluna frá Gló stuðningsfélagi fyrir framúrskarandi og kærleiksríkt starf í fótboltaverkefni Asparinnar í samstarfi við Stjörnuna. Gunnhildur hefur verið ómetanleg fyrirmynd í starfi með börnum og ungmennum hjá Ösp. Með hlýju, fagmennsku og virðingu hefur hún byggt upp jákvætt og...

Laugardaginn 29. nóvember tók Nútímafimleikadeild Aspar þátt í árlegri jólasýningu Aspar og Ármans sem var haldin í fimleikaaðstöðu Ármans í Laugardal.  Hópurinn stóð sig afar vel og var mikil stemmning á sýningunni. Síðasta æfing í nútímafimleikum fyrir jól verður 13. desember....

Um nýliðna helgi, nánar tiltekið laugardaginn 29. nóvember, var keppt í skautahlaupi (short track) í Skautahöllinni í Laugardal.  Íþróttafélagið Ösp átti þar fulltrúa, Andra Frey Magnússon, sem er skautaþjálfari í skautadeild Aspar.  Andri lenti í þriðja sæti en Erwin van der Werve varð íslandsmeistari 2025...

Öspin hélt bikarmót fatlaðra í Ármannssalnum laugardaginn 29. nóvember, og tókst mótið afar vel. Góð stemning var í salnum og fjölbreyttur hópur keppenda tók þátt. Yngsti keppandinn á mótinu var aðeins 11 ára og stóð sig mjög vel. Þá setti Númi Íslandsmet í sínum flokki í...