Fréttir

Vorhátíð Asparinnar verður haldin sunnudaginn 17. maí kl. 14:00 í beinu framhaldi af aðalfundi félagsins sem hefst kl. 13:00.  Það er mikilvægt að félagsmenn mæti á fundinn til að nýta kostningarétt sinn og njóta síðan veitinga með félögum sínum.  Ösp íþróttafélag fagnar 46 ára afmæli...

Á aðalfundi KLÍ sæmdi Keilusamband Íslands hjónin Laufeyju Sigurðardóttur og Bjarka Sigurðsson Silfurmerki KLÍ fyrir ómetanlegt framlag þeirra til málefna fatlaðra keilara. Hjónin hafa um árabil verið drifkraftar í starfi Asparinnar í keilu þar sem þau hafa lagt metnað sinn í að efla þátttöku, skapa...

Aðalfundur Íþróttafélagsins Aspar verður haldinn í Sigtúni 42, 108 Reykjavík, sunnudaginn 17. maí kl.13:00. Samkvæmt lögum félagsins skal dagskrá aðalfundar vera: Fundarsetning Kosning fundarstjóra, fundarritara og annarra starfsmanna fundarins Lögð fram ársskýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár og umræða um hana Lagðir fram skoðaðir ársreikningar, umræða og...

Búið er að opna fyrir umsóknir í Ollasjóð hér á vefnum. Markmið sjóðsins er að styrkja iðkendur og félagsmenn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga kost á því að taka þátt í íþróttastarfi Asparinnar vegna fjárhagsstöðu eða sérstakra aðstæðna. Sjóðurinn styrkir ýmis verkefni svo sem æfingagjöld,...

Í dag voru veittir styrkir til Íþróttafélagsins Aspar við formlega afhendingu frá Lýðheilsusjóði. Helga Hákonardóttir, formaður Íþróttafélagsins Aspar, og Sigurður Jónas Eggertsson, stjórnarmaður Aspar, veittu styrkjunum viðtöku fyrir hönd félagsins. Kristín Heimis, formaður Lýðheilsusjóðs, afhenti styrkina en félagið hefur um árabil notið stuðnings sjóðsins til fjölbreyttra...

Unified leikar í fótbolta fara fram 1. mars næstkomandi í Miðgarði í Garðabær kl: 10:00. allar nánanir upplýsingar veitir Elfa á netfangið elfa.erlings@gmail.com Endilega kíkið á Unified leika í fótbolta....

Íþróttafélagið Ösp kynnir með ánægju að Laufey Sigurðardóttir hefur verið ráðin til að sjá um rekstur og daglega umsýslu skrifstofu Aspar. Laufey mun jafnframt áfram gegna stöðu yfirþjálfara keiludeildar Aspar. Skrifstofan er í Sigtúni 42 og netfang hennar er ospin@ospin.is....

Helgina 12-15. desember fór fram, á vegum Austurríska skautasambandsins í samstarfi við Special Olympics Austria, Opna Austurríska Meistaramótið í listskautum. Íþróttafélagið Ösp átti 11 þátttakendur á mótinu sem var haldið í Ólympíuhöllinni í Innsbruck. Óhætt er að segja að keppendur hafi staðið sig með eindæmum...

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir hefur hlotið Kærleikskúluna frá Gló stuðningsfélagi fyrir framúrskarandi og kærleiksríkt starf í fótboltaverkefni Asparinnar í samstarfi við Stjörnuna. Gunnhildur hefur verið ómetanleg fyrirmynd í starfi með börnum og ungmennum hjá Ösp. Með hlýju, fagmennsku og virðingu hefur hún byggt upp jákvætt og...

Laugardaginn 29. nóvember tók Nútímafimleikadeild Aspar þátt í árlegri jólasýningu Aspar og Ármans sem var haldin í fimleikaaðstöðu Ármans í Laugardal.  Hópurinn stóð sig afar vel og var mikil stemmning á sýningunni. Síðasta æfing í nútímafimleikum fyrir jól verður 13. desember....